12. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, mánudaginn 14. nóvember 2022 kl. 14:47


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 14:47
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 14:47
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 14:47
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 14:47
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 14:47
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 14:47
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 14:47
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 14:47

Sigmar Guðmundsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 14:47
Á fundinum var kannaðar tilkynningar landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Eydísar Ásbjörnsdóttur, sem hlaut kosningu sem 2. varaþingmaður Samfylkingarinnar - jafnaðarmannaflokks Íslands í Norðausturkjördæmi, og Högna Elfars Gylfasonar, sem hlaut kosningu sem 4. varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, í alþingiskosningunum 25. september 2021. Tilkynningarnar eru gefnar út í samræmi við 113. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynningarnar og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Eydísar Ásbjörnsdóttur og Högna Elfars Gylfasonar.

2) Önnur mál Kl. 14:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:50